Lækkun hlutafjár í Sjóvá-Almennum tryggingum hf.

Skráð hefur verið í Fyrirtækjaskrá hlutafjárlækkun í Sjóvá-Almennum tryggingum hf. að nafnverði kr. 21.803.205, en á aðalfundi félagsins þann 7. mars sl. var samþykkt eftirfarandi tillaga stjórnar um að lækka hlutafé félagsins:„Aðalfundur Sjóvá-Almennra trygginga hf. haldinn 7. mars 2024 samþykkir að hlutafé félagsins verði, lækkað um kr. 21.803.205 að nafnverði til jöfnunar eigin hluta á grundvelli ákvæða laga nr. 2/1995, um hlutafélög. Hlutafé félagsins lækkar þar með úr kr. 1.178.393...
Reykjavík, (informazione.it - comunicati stampa - servizi)

Skráð hefur verið í Fyrirtækjaskrá hlutafjárlækkun í Sjóvá-Almennum tryggingum hf. að nafnverði kr. 21.803.205, en á aðalfundi félagsins þann 7. mars sl. var samþykkt eftirfarandi tillaga stjórnar um að lækka hlutafé félagsins:

„Aðalfundur Sjóvá-Almennra trygginga hf. haldinn 7. mars 2024 samþykkir að hlutafé félagsins verði, lækkað um kr. 21.803.205 að nafnverði til jöfnunar eigin hluta á grundvelli ákvæða laga nr. 2/1995, um hlutafélög. Hlutafé félagsins lækkar þar með úr kr. 1.178.393.205 að nafnverði í kr. 1.156.590.000 að nafnverði.“ 

Óskað hefur verið eftir því við Nasdaq verðbréfamiðstöð um að lækka skráð hlutafé til samræmis, fyrsti viðskiptadagur eftir lækkunina mun vera 2. apríl 2024. Fyrir hlutafjárlækkunina á Sjóvá 21.803.205 eigin hluti eða sem nemur 1,85% af útgefnum hlutum í félaginu. Eftir hlutafjárlækkunina á Sjóvá enga eigin hluti.

Niðurfærslan hefur ekki áhrif á hlutafé í eigu annarra hluthafa en félagsins sjálfs.

Nánari upplýsingar veitir:

Davíð Scheving Thorsteinsson í síma 869-8109 eða á netfangið [email protected]


Per maggiori informazioni
Sito Web
sjova.is
Ufficio Stampa
 Nasdaq GlobeNewswire (Leggi tutti i comunicati)
2321 Rosecrans Avenue. Suite 2200
90245 El Segundo Stati Uniti
Allegati
Slide ShowSlide Show
Non disponibili